10.06.1941
Neðri deild: 75. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í C-deild Alþingistíðinda. (2962)

57. mál, bygging sjómannaskóla

Sigurður Kristjánsson:

Ég hef að sönnu greitt atkv. með þessu frv. til síðustu umr. og er því að sjálfsögðu mjög fylgjandi, að sjómannaskóli sé byggður. En þar sem frestun á lagasetningu er ekki hættuleg og þegar er búið að samþ. fjárveiting til að byrja að reisa skólann og ríkisstjórnin hefur lýst yfir því, að hún muni leggja fyrir næsta Alþingi frv. til l. um þetta efni, segi ég já.