28.03.1941
Neðri deild: 26. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í B-deild Alþingistíðinda. (311)

56. mál, verðlagsuppót á laun embættis- og starfsmanna ríkisins

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Ég held það væri rétt að afgr. þetta mál nú þegar hér í deildinni. Það eru alltaf tækifæri til að minnast á hitt, hvenær fullkomin endurskoðun á launal. er framkvæmanleg, og annað í sambandi við þál. um launamál og starfsmannahald ríkisins. Það er hvort sem er ekki hægt að láta þessar verðlagsuppbætur bíða eftir því, að hér séu samþ. ný launalög.