28.03.1941
Efri deild: 26. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í B-deild Alþingistíðinda. (322)
56. mál, verðlagsuppót á laun embættis- og starfsmanna ríkisins
*Magnús Gíslason:
Hvað viðvíkur verðlagsuppbótinni í fyrra, get ég gefið þær upplýsingar, að hana bar aðeins að greiða hinum föstu starfsmönnum, þó var reynt að bæta þeim upp, sem ekki heyrðu beint undir þessi l., t. d. tímakennarar fengu hækkun á hvern tíma, og var það allrífleg uppbót. En ef ágreiningur rís út af þessu, þá sker fjmrh. úr, og það er undir hans úrskurði komið, hvort uppbót verður greidd eða ekki.
Til þess að hægt sé að greiða uppbót, þá þar í að vera einhver föst regla til að fara eftir, en ef svo er ekki, verður að semja við hlutaðeigandi aðila. Margt fólk hjá ríkinu fær sín laun eftir kauptaxta stéttarfélaganna, og um það getur enginn ágreiningur risið. — Eins og nú standa sakir, er svo mikil eftirspurn eftir fólki, að engin hætta ætti að vera á, að níðzt verði á því hvað uppbót snertir. En sem sagt, fjmrh. kemur þar til með að skera úr þeim ágreiningi, er rísa kann.