04.04.1941
Efri deild: 31. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1257 í B-deild Alþingistíðinda. (33)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Það hefur ef til vill verið ástæða til að misskilja það, sem ég sagði áðan. En ég vil bæta því við, að rannsókn á vörutryggingunni var ekki lokið, þegar málið var til athugunar í fyrra sumar, heldur komu aðeins fram till. um fasteignatrygginguna. Þá ráku menn sig á svo marga erfiðleika í sambandi við vörutrygginguna, að þeirri rannsókn er enn ekki lokið. En ekki alls fyrir löngu hefur þetta mál verið tekið upp að nýju, og er vonazt eftir, að sú sérfræðinganefnd, sem hefur þetta til meðferðar, geti mjög fljótlega lagt fram sínar till. fyrir ríkisstj. Það hefur staðið á því að gera sér ljósa möguleikana á vörutryggingunni, en vonazt er eftir till. hennar fljótlega.