14.05.1941
Neðri deild: 59. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í D-deild Alþingistíðinda. (3480)

125. mál, vegavinna

*Atvmrh. (Ólafur Thors) :

Út af fyrirspurn hv. þm. Ísaf. vil ég fyrir mitt leyti viðurkenna, að þar, sem svo stendur á, kemur annað sjónarmið til greina en hið almenna. Þegar um það er að ræða, væru annars vegar ekki veigamiklar framkvæmdir, og hins vegar gætu þeir, sem að þeim ynnu, ekki afkastað miklu í þágu landbúnaðarins. Er því rétt að taka tillit til þess, þar sem ekki verður nema um óverulegar framkvæmdir að ræða í slíkum tilfellum.