16.05.1941
Sameinað þing: 18. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í D-deild Alþingistíðinda. (3553)

156. mál, stjórnskipulag Íslands

*Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Ég hef rætt um þessa till. skv. fyrirfram gefnu leyfi hæstv. forseta, um leið og ég ræddi um allar till. Í heild í framsöguræðu minni, sem að vísu var stutt, og ég vil því segja það til viðbótar því, sem ég hef áður sagt, að ég vænti þess, án þess að um þetta verði rætt nánar, að hv. þm. geti allir fallizt á þessa till., eins og till. um sjálfstæðismálið.