21.05.1941
Neðri deild: 64. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í D-deild Alþingistíðinda. (3567)
152. mál, kirkjubyggingar í Skálholti og á Þingvöllum
*Gísli Guðmundsson:
Ég þyrfti lengra en stutta athugasemd til að koma hv. 1. þm. Rang. í skilning um, að þetta sé rökrétt, hjá mér, en ég ætla að láta mér nægja að benda á það, að ef um er að ræða mál, sem á erfitt uppdráttar, þá er vænlegasta ráðið að taka það upp í sambandi við mál, sem engin andstaða er gegn, og þannig virðist vera með kirkjubyggingarmálið. — Ég hygg, að hv. þm. sé þetta ljóst.