07.06.1941
Neðri deild: 73. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (3591)

118. mál, síldarmjölsbirgðir til fóðurtryggingar

Forseti (JörB) :

Samkvæmt ákvæðum þingskapa gildir það um þáltill., sem hafa fjárútlát í för með sér, að þær eiga að leggjast fram í sameinuðu þingi. Ef ætti að breyta þessari þáltill. í það horf, að hún ákvæði fjárframlög, þyrfti að bera þáltill. fram í Sþ. En það er ekki þar með sagt, að þessi þáltill. eigi ekki að ganga sinn gang.