14.06.1941
Sameinað þing: 26. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í D-deild Alþingistíðinda. (3621)

65. mál, orlof

*Héðinn Valdimarsson:

Aðeins örlítil aths. út af tölu verkamanna fyrir utan Alþýðusambandið, sem þó eru skipulögð samtök. Í Dagsbrún eru 3400 manns, Þrótti á Siglufirði nær 800. Þá er verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði og verkamannafélag á Norðfirði. Enn fremur eru á nokkrum öðrum stöðum öflug verkamannafélög. Vænti ég, að ef hv. þm. leggja þetta saman, þá fái þeir fleiri en 6 þúsund manns (BrB: Svo er Akureyri og Húsavík). Já, Akureyri og Húsavík og fleiri.