28.03.1941
Neðri deild: 25. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í B-deild Alþingistíðinda. (365)

3. mál, tollheimta og tolleftirlit

*Frsm. (Stefán Stefánsson) :

Viðvíkjandi þessari aths. síðasta ræðumanns vil ég benda honum á, að hann hefur farið nefndarálitavillt,. því að það, sem hann er að tala um, stendur í nál. fjhn. Ed., en ekki þessarar d. Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fara inn á ræðu hans, því að það mál, sem hann minntist á, er þessu máli algerlega óviðkomandi.