16.06.1941
Sameinað þing: 28. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í D-deild Alþingistíðinda. (3680)
172. mál, verðuppbót á mjólk og mjólkurafurðir
*Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Við fyrirspurn, sem komið hefur fram frá hv. 1. þm. Rang. um, hvort uppbót verði greidd á ostavörur, sem ekki hafa nú verið fluttar út vegna stöðvunar siglinga, þá get ég svarað því, að þessar vörur hljóta að falla undir þær vörur, sem undirbúnar hafa verið til útflutnings og áður hafa verið fluttar út. — Ég vil beina athygli hv. þm. að því, að n. sú, sem skiptir þessari uppbót, gerir það samkvæmt samningum við Breta. — Þess vegna getur farið svo, ef krafa kemur ekki til n. um uppbót á osti, að þeir menn, sem þar eiga hlut að máli, tapi sínum rétti, og til að fyrirhyggja það, þá ættu þeir að gera kröfu til bóta í tæka tíð.