09.05.1941
Sameinað þing: 14. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í D-deild Alþingistíðinda. (3752)
58. mál, Sogsvirkjunin
*Flm. (Eiríkur Einarsson) :
Ég get fallizt á það, að þáltill. verði vísað til n., sem yrði þá líklega allshn., í trausti þess að vísu, að hv. n. ljúki störfum, svo að till. geti orðið framgangs auðið. Ég hef ekki heldur neitt á móti því, að till. verði breytt, þó að ég sé andvígur því, að byrjað sé á þessu máli á öfugum enda, eins og ég gat um áðan.