09.05.1941
Neðri deild: 55. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í B-deild Alþingistíðinda. (736)
19. mál, óskilgetin börn
Frsm. (Bergur Jónsson) :
Aths. hv. 7. landsk. beindust eingöngu að því, að ekki mætti greiða verðlagsuppbót á barnsmeðlög á tímabilinu frá 1. jan. til 1. ág. í ár, og virðist vera mjög smásmuguleg ástæða til þessarar aðfinnslu. Eftir því, sem hann tók fram í ræðu sinni, átti í fyrra að ákveða meðalmeðlög samkv. l., og með tilliti til aukinnar dýrtíðar voru þau hækkuð um 17–20%. Hefur þessi hv. þm. viðurkennt, að dýrtíðin hafi verið allmiklu meiri heldur en þessari hækkun nam, miðað við vísitölu frá 1. jan. Ég sé þess vegna ekki nema smávægilegar aths., sem felast í ræðu hv. þm. og í mótmælum hans gegn 1. brtt. n. Það virðist svo, sem hann gangi út frá því sem gefnu, ef frv. verður samþ. án 1. brtt. n., að meðlögin verði hækkuð árlega með tilliti til aukins framfærslukostnaðar í landinu. hetta er alls ekki víst og allt undir framkvæmdinni komið, því að ef farið er að lögbinda þessa breyt. á l. eins og hún er í 1. gr. frv., hefur ráðherra vald til að ákveða meðlögin, að fengnum till. sýslunefnda, og þarf hann ekki að binda sig við þær nema að litlu leyti. Mér finnst ekki ástæða til að gera storm út af því, þó að hækkunin á meðlögunum nemi nokkrum % meira frá nýári.
Hæstv. félmrh. viðurkenndi, að í þessum brtt. væri um rétta hugsun að ræða, og hann lofaði því fyrir sitt leyti að taka tillit til þess við ákvörðun grunntaxtans, meðan hann hefði þessi mál með höndum. Við meiri hl. n. sjáum ekki ástæðu til, að meðalmeðgjöfinni sé breytt á annan hátt en þann, að hún sé í fullu samræmi við þá almennu vísitölu, sem gildir í landinu fyrir kaupgjald og framfærslueyri. Ég vona, að hv. d. gangi inn á þessa brtt., þó að það kynni að verða fáeinum krónum hærra, sem hver einstakur barnsfaðir greiðir þetta 7 mánaða tímabil, heldur en verið hefði, ef þessi breyt. hefði komið fram áður en gengið var frá meðalmeðlögum í fyrra. Ég vænti þess, að d. láti það ekki hafa nein áhrif á sig og geti unnað þessum aðilum, sem flest eru fátækar konur, að fá fáeinum krónum meira í þetta sinn.