23.05.1941
Sameinað þing: 19. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Eiríkur Einarsson:
Snemma á þingi var borin fram till. til þál. um aukningu Sogsvirkjunarinnar, en umr. var frestað og málinu vísað til allshn. Nú hefur n. haft málið lengi til athugunar, en hefur ekki enn skilað áliti. Með því að nú er mjög liðið á þingtímann, vildi ég biðja hæstv. forseta að stuðla að því, að allshn, skilaði áliti um málið og að forseti tæki þá málið á dagskrá. Þessi till. til þál. er borin fram af mér, og vænti ég, þar sem svo mikilsvert mál er á ferðinni, að fleiri hv. þm. láti sig nokkru skipta um afdrif þess.