23.05.1941
Neðri deild: 65. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (82)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Forseti (JörB) :

Út af ummælum hv. þm. Barð. vil ég geta þess, að það er í samráði við hæstv. forsrh., að þetta mál er ekki komið á dagskrá aftur, og ég hef beðið eftir því, að ég fengi bendingu um það, hvenær það skuli koma á dagskrá, og er ég reiðubúinn að taka það hvenær sem er.