06.06.1941
Sameinað þing: 24. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í B-deild Alþingistíðinda. (839)

159. mál, fjáraukalög 1939

Fjmrh. (Jakob Möller) :

Ég hef athugað þessar breyt. hv. fjvn., og eru þær réttmætar. Skekkjurnar stafa af prentvillum af mislestri, annaðhvort við samningu frv. eða samanburð á annan hátt, og þetta eru því aðeins leiðréttingar, sem hér er um að ræða í brtt. hv. fjvn.