09.06.1941
Sameinað þing: 25. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í B-deild Alþingistíðinda. (841)

159. mál, fjáraukalög 1939

Jón Pálmason:

Ég var ekki viðstaddur, þegar þetta mál var til 2. umr. Ég sé, að það hafa slæðzt tvær töluskekkjur inn, sem mér er óhætt að fullyrða að hafa ekki farið fram hjá þeim, sem skoðuðu þetta, heldur komið inn við prentun. Ég vil aðeins taka þetta fram, án þess að ég ætli hér nokkuð að fara að ræða fjáraukalögin.