23.05.1941
Neðri deild: 65. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1284 í B-deild Alþingistíðinda. (85)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Gísli Guðmundsson:

Ég hygg, að það hafi verið um miðjan apríl, sem ég flutti hér í d., ásamt hv. þm. Barð., till. um síldarmjöl til skepnufóðurs. Þetta mál var tekið út af dagskrá og vísað til landbn., og vildi ég leyfa mér að spyrjast fyrir um það, hvað afgreiðslu þessarar till. liði í þeirri n.