17.06.1941
Sameinað þing: 20. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1286 í B-deild Alþingistíðinda. (91)

Kosning ríkisstjóra

forseti (HG) :

Samkvæmt dagskránni fer nú fram kosning ríkisstjóra, samkv. nýafgreiddum lögum frá þinginu, og gildi kosning hans til eins árs, frá deginum í dag til jafnlengdar 1942.

Vil ég biðja þingskrifara að útbýta kjörseðlum meðal þingmanna, taka síðan við þeim og færa mér, er þingmenn hafa greitt atkvæði.