19.11.1941
Neðri deild: 25. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (199)

25. mál, ábyrgð rekstrarláns fyrir Landsbankann

Skúli Guðmundsson:

Af því að þessu frv. hefur ekki verið vísað til n. hér í hv. Nd., vildi ég leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh. um það, hvort hann telji ekki tryggt, ef þessi lánsheimild verður notuð nú, að lánið verði endurgreitt fljótlega af andvirði fyrir útfluttar vörur, þannig að þarna verði ekki um varanlegt lán að ræða, heldur lántöku til stutts tíma.