19.11.1941
Efri deild: 24. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í B-deild Alþingistíðinda. (292)

19. mál, rithöfundaréttur og prentréttur

Magnús Jónsson:

Ég vil fara fram á, að þessu máli verði frestað og það tekið fyrir á morgun, því að ég vil spyrjast fyrir um það hjá n., hvort hún hefur lesið 1. um rithöfundarétt og prentrétt frá 1905 og gengið úr skugga um, að ekkert sé í afgreiðslu málsins nú, sem rekst illilega á 1. Ef n. hefur ekki gert það, vil ég biðja um frest.