28.10.1941
Neðri deild: 7. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

Fyrirspurnir um stjórnarframkvæmdir o.fl.

Forseti (JörB):

Viðvíkjandi fyrirspurn hv. þm. Ísaf. út af þáltill. hans, sem hann gat um, vil ég geta þess, að ég hef ekki tekið hana á dagskrá enn sem komið er vegna þess, að ég bjóst við miklum umr. um þessi dagskrármál, sem eru á dagskrá. En þegar um hægir, mun hún verða tekin til meðferðar.