19.11.1941
Efri deild: 22. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í C-deild Alþingistíðinda. (474)
20. mál, vörugjald fyrir Vestmannaeyjakaupstað
Jóhann Jósefsson:
Ég vil þakka hv. n. fyrir afgreiðslu málsins. Það er rétt, sem hv. frsm. sagði, að þegar málið var í n., gat hún ekki vitað, hve langt yrði til þingslita. Það er líka rétt, að það mun ekki hafa úrslitaþýðingu, hvort málið fer lengra nú eða ekki, en hins vegar er ekkert á móti því, að hv. d. sýni málinu hug sinn. Þetta mál var fellt á síðasta þingi og heldur ómaklega. Það hefði þó getað komið á svipuðum notum, ef það hefði náð samþykki á þessu þingi. Ég er þó ekki að saka hv. n. um það, hvernig komið er. Vona ég, að málið verði borið fram síðar af mér eða öðrum við heppilegri skilyrði.