20.11.1941
Sameinað þing: 15. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (50)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Gísli Sveinsson:

Herra forseti! Ég stend upp aðeins til þess að lýsa yfir því, að ég styð till. hv. 1. þm. Árn. Ég tel rétt, að hæstv. forseti taki hana til meðferðar og leiti með atkvgr. þingviljans um það, hvort eigi beri að taka af dagskrá öll þau mál, sem fyrir liggja.