10.11.1941
Sameinað þing: 11. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í D-deild Alþingistíðinda. (537)

9. mál, trúnaðarbrot við Alþingi

Forseti (HG) :

Áður en næsti maður tekur til máls, vil ég leyfa mér að taka hér upp ummæli hæstv. atvmrh., er hann lét falla áðan. Ég ætla, að hann hafi sagt á þessa leið: „Það má mikið vera, ef böndin berast ekki að þeim, sem hærra situr en ég á þessar í samkundu, áður en umr. lýkur.“ — Á þessari samkundu sit ég hærra en hæstv. ráðh., og óska ég, að hæstv. ráðh. gefi skýringu á þessum orðum sínum.