21.11.1941
Sameinað þing: 16. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í B-deild Alþingistíðinda. (572)

Þinglausnir

Ríkisstjóri (Sveinn Björnsson) :

Í ríkisráði í dag var gefið út svo látandi opið bréf: „Ríkisstjóri Íslands gerir kunnugt: Að ég hef ákveðið, að aukafundi Alþingis, 58. löggjafarþingi, skuli slitið föstudaginn 21. nóv. 1941.

Mun ég því slíta Alþingi þann dag.

(Gert í Reykjavík, 21. nóv. 1941.

Sveinn Björnsson.

Hermann Jónasson.

Opið bréf ríkisstjóra Íslands um þingslit.“

Með því að Alþingi hefur lokið störfum að þessu sinni, segi ég þinginu slitið.

Ég vil biðja alþm. að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum sínum.

Þingmenn stóðu upp, og forsætisráðherra, Hermann Jónasson, mælti: „Lifi Ísland“

Tóku þm. undir það með ferföldu húrrahrópi.