15.10.1941
Sameinað þing: 3. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (9)

Kosning fastanefnda

forseti (HG) :

Ég vil leyfa mér að tilkynna fastanefndum sameinaðs þings, að ef ekki verður tilkynnt annað fyrir föstudagskvöld, verður litið svo á, að skipan formanna og ritara fastanefnda verði hin sama og á síðasta þingi. Verði breyt. á þessu, óskast það tilkynnt fyrir áður greindan tíma.