21.05.1942
Sameinað þing: 19. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (1127)

134. mál, stjórnarskrárnefnd

Forseti (GSv):

Í þessu máli hefur komið fram skrifleg brtt. frá hv. 4. þm. Reykv., og er hún við brtt. á þskj. 422, svo hljóðandi: „Í stað orðanna „Alþingi ályktar að kjósa 5 manna milliþinganefnd“ komi : Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa 5 manna milliþinganefnd eftir tilnefningu stjórnmálaflokkanna á Alþingi, einn mann frá hverjum flokki.

Vil ég leita afbrigða fyrir þessari brtt.