25.03.1942
Efri deild: 23. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)
50. mál, aðstoðarlæknar héraðslækna
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Við 1. umr. var þetta frv. nokkuð rætt, og frá hálfu n. sé ég ekki ástæðu til að hefja umr. um það nú, við 2. umr., nema sérstakt tilefni gefist. En ég vildi beina því til hæstv. forseta eða benda á, að 4. málið á dagskránni nú, sem er í sambandi við þetta mál, sem fyrir liggur og á nú á fundinum að vera til 1. umr., tel ég heppilegast, að geti fylgt þessu máli, þannig að þau gætu bæði komið samtímis til 3. umr., ef hv. þd. getur fallizt á þau á annað borð.