22.05.1942
Sameinað þing: 20. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í D-deild Alþingistíðinda. (1244)

149. mál, lífeyrissjóður embættismanna og lífeyrissjóður barnakennara

Skúli Guðmundsson:

Mér þótti vænt um að heyra álit hv. þm. Seyðf. á þessu, því að hann er forstjóri Tryggingarstofnunar ríkisins og þekkir manna bezt inn á þetta. Ég er honum sammála um, að fjölga beri sjóðunum. Ég er sammála hv. flm. till. um að láta fara fram endurskoðun á þessum l., því að tímarnir eru þannig nú, að þess gerist full þörf.