21.05.1942
Sameinað þing: 19. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í D-deild Alþingistíðinda. (1318)

139. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Forseti (GSv):

Þá hefur fulltrúi Sjálfstfl., hæstv. forsrh., Ólafur Thors, lokið máli sínu. Og með því að hann hefur nú talað helmingi lengri tíma en flokki hans var ætlaður, þá mun ég nú gefa hv. 1. þm. S.-M., Eysteini Jónssyni, ræðutíma í 5 mínútur nákvæmlega. Ég skal geta þess, að gefnu tilefni, áður en sá hv. þm. tekur til máls, að hann hafði notað 5 mínútum meira en sinn tíma, síðast er hann talaði hér.