19.03.1942
Neðri deild: 22. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (140)

13. mál, skemmtanaskattur

Gísli Guðmundsson:

Í sambandi við þær umr.. sem hér hafa farið fram, vildi ég spyrjast fyrir um það hjá hæstv. Ríkisstj., hvaða tekjur þjóðleikhúsið hefur nú af þeirri notkun, sem á því er. Ég minnist þess ekki, að neitt hafi verið gert kunnugt um það. En það væri fróðlegt, að það væri upplýst.