29.04.1942
Efri deild: 42. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í B-deild Alþingistíðinda. (1436)

69. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Páll Zóphóníasson:

Ég vil bara, um leið og frv. fer til n., minna n. á, að á fjórða hundrað manns úti um sveitir landsins bíða eftir að geta innt af hendi vinnu vegna skattaálagningar, en nú byrja vorannir og því mikilsvert, að hægt sé að ljúka skattastörfunum sem fyrst. Ég vil því vænta þess, að hv. n. afgreiði þetta mál sem allra fyrst.