24.04.1942
Sameinað þing: 8. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í D-deild Alþingistíðinda. (1543)

85. mál, Djúpbátur

Flm. (Sigurður Kristjánsson):

Herra forseti ! Af sömu ástæðum og ég greindi í sambandi við næsta mál hér á undan mun ég á þessu stigi málsins láta nægja að vísa til grg., sem þáltill. fylgir, en gefa svo hv. fjvn., sem væntanlega fær þetta mál til athugunar, allar upplýsingar, sem ég get, þar á meðal teikningar af fyrirhuguðu skipi. Svo mun ég að sjálfsögðu gefa hæstv. Alþ. skýrslu líka, síðar við umr. um þetta mál.