30.03.1942
Efri deild: 24. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)
55. mál, lækningaleyfi
Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég vil taka fram, út af ummælum hæstv. forsrh., að þar sem ég er í fjvn., er mér kunnugt um svar hennar í þessum málum. Hún hefur aldrei beinlínis svarað því, hvort hún væri með því að læknar fengju hækkuð laun. En í bréfi, sem viðkomandi ráðh. skrifaði fjvn., er lagt til, að hún segi sitt álit um það atriði. Hún taldi því rétt að gera betur við embættismenn úti á landi og hækka laun þeirra í samræmi við aðra embættismenn.
Ég vil ekki, að það sé álitin skoðun mín eða fjvn., ef tekin verður upp sú regla að veita embættismönnum verðlagsuppbót á laun, sem ekki eru grunnlaun. Þetta skildist mér á hæstv. forsrh. Þykir mér slíkt. óviðunandi, en launauppbót gæti komið til mála.