02.05.1942
Neðri deild: 46. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í B-deild Alþingistíðinda. (1649)

81. mál, eignarnám hluta af Vatnsenda

Skúli Guðmundsson:

Ég læt þessari síðustu ræðu ósvarað, en vísa heim til föðurhúsanna öllum aðdróttunum hv. þm. Hann gekk nú sem fyrr alveg framhjá því aðalatriði, að Reykjavíkurbær getur fengið varanleg umráð yfir þessum landskika, án þess að brotin verði fyrirmæli í erfðaskrá hins látna jarðareiganda. Um það eru brtt. mínar.