13.05.1942
Efri deild: 57. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (1720)

84. mál, jarðræktarlög

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég verð að standa upp aftur til þess að mótmæla forsrh.

Ég held, að ef hann hefði hlustað á mál mitt í gær, hefði hann sannfærzt um, að ég var ekki að draga inn deilur um þetta mál. Hv. flokksmönnum hans ber meira að segja saman um það, að ég hagaði orðum mínum alls ekki þannig, að ég hefði vakið þar deilur, enda urðu engar deilur um málið. Menn geta verið hver á sinni skoðun án þess að deila.