15.05.1942
Efri deild: 58. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í B-deild Alþingistíðinda. (1879)

15. mál, málflytjendur

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég hef fátt um þetta að segja nú, því að ég gerði grein fyrir brtt. minni við 2., umr., en ég get ítrekað það, að ef fulltrúar fá undanþágu frá prófraun upp í hæstarétt, þá beri sýslumönnum eigi síður að njóta þeirra þæginda. Ég hef heyrt á hv. nm., að þeir séu fremur samþykkir brtt. minni, og vona, að hinir hv. dm. samþ. hana.