16.05.1942
Efri deild: 59. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í B-deild Alþingistíðinda. (1887)

15. mál, málflytjendur

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég hjó eftir því hjá hv. frsm. allshn., að n. hefði ekki viljað gera þessa breyt. Það er rétt. En ég minntist í gær á þá lausn, sem nú kom fram í brtt. hv. þm. Str. Hafði ég gert uppkast að slíkri till., og er þar aðeins víkið við orðalagi. Ég tel þessa lausn málsins miklu skynsamlegri, sérstaklega þar sem till. hefur nú komið fram um að bæta enn einum flokki við, og mun ég því greiða atkv. með brtt. hv. þm. Str.