26.02.1942
Neðri deild: 6. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (19)
12. mál, loftvarnir
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Þessi breyting á gildandi lögum var gerð vegna þess, að nauðsynlegt var talið vegna eldhættu, sem af loftárásum getur komið, er minnst varir, einkum þar sem eru timburhús, að koma sem fyrst hinum einföldustu eldvarnatækjum í öll hús. Húseigendur hafa verið skyldaðir til að hafa þau í húsum sínum, og ráðstafanir þessar hafa þegar verið framkvæmdar í aðalatriðum. Fyrst og fremst er það sandur, sem notaður er til að slökkva í eldsprengjum, þar sem vatn má alls ekki nota til þess. Frekari skýringar hygg ég ekki þurfi að fylgja þessum ráðstöfunum.