19.05.1942
Efri deild: 61. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (2030)

20. mál, framkvæmdasjóður ríkisins

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég vil svara því, sem hv. 1. þm. Eyf. heldur fram, að mín varatill. geri hans till. að engu. Ef ákvæðum till. okkar er fylgt, þýðir það aukin framlög til þeirra framkvæmda, sem um er að ræða, úr framkvæmdasjóði. Sem því nemur eykst framlag í fjárl. hvers árs eftir stríð. Ég vil því mótmæla skilningi hv. 1. þm. Eyf.