05.05.1942
Neðri deild: 51. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (2043)
53. mál, lestrarfélög og kennslukvikmyndir
Gísli Guðmundsson:
Þann 20. marz var útbýtt hér í d. frv. til l. um breyt á l. um lestrarfélög, flutt af okkur hv. þm. Barð. Þetta mál var til umr. hér í d. 24. marz og var vísað til hv. menntmn. Nefndin hefur haft þetta mál til meðferðar nú um 6 vikna skeið, og vildi ég spyrjast fyrir um það, hvort álit hennar sé ekki væntanlegt mjög bráðlega, þannig að hægt verði að taka málið til umr.