20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í B-deild Alþingistíðinda. (2167)

66. mál, eignarnámsheimild á heitu vatni og landi í Siglufirði

Frsm. (Finnur Jónsson):

Mál þetta er hingað komið frá Ed. Allshn. hefur athugað það og leggur til, að það verði samþ. með þeirri breyt., að á eftir 1. gr. komi ný gr. um, að framkvæmd eignarnámsins skuli fara fram eftir ákvæðum laga nr. 61 14. nóv. 1917, um eignarnám.

Ég vil hafa sama formála fyrir þessu frv. og hafður var fyrir frv., sem var hér á dagskrá næst á undan, frv. um sölu þjóðjarðarinnar Hólms, að hæstv. forseti hraði þessu máli, svo að það geti komizt fram á þessu þingi.