21.05.1942
Neðri deild: 63. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í B-deild Alþingistíðinda. (2191)

118. mál, eignarnám landa á hverasvæðinu í Ölfusi

*Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Þetta frv. er um heimild fyrir stj. til að taka eignarnámi nokkur lönd í Ölfusi, þ.e. á hverasvæðinu í Hveragerði og í nágrenni þess, eftir því sem tilgreint er í frv. Þetta mál er hingað komið frá Ed. og var samþ. þar án ágreinings. Allshn. þessarar d. hefur haft málið til meðferðar og athugunar og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.