21.05.1942
Neðri deild: 63. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (2218)

80. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

*Frsm. (Jón Pálmason):

Þetta frv. um breytingar á mjólkursölulögunum er komið frá hv. Ed. Það er um að ræða 2 breytingar frá eldri lögum, í fyrsta lagi, að verðjöfnunargjaldið skuli nú miðað við. 2600 lítra meðalnyt í stað 3000 áður, og að nú skuli 1 lítri á mann vera frjáls til heimilisnotkunár og undanþeginn verðjöfnunargjaldi í stað 1/2 lítra áður. Landbn. þessarar deildar er einhuga um málið og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.