22.05.1942
Efri deild: 66. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (2361)

136. mál, tollskrá o.fl.

*Erlendur Þorsteinsson:

Ég get skilið, að það sé erfitt fyrir hæstv. atvmrh. að svara fyrirspurn minni, þar sem þetta mál heyrir ekki undir hans ráðuneyti. En hæstv. ráðh. hefur samt lofað að koma skilaboðum mínum til ríkisstj. um, að hún notfæri sér þessa heimild nú, því að betra er seint en aldrei. Mun ég því ekki bera fram skrifl. brtt. við frv., í þeirri von, að þess gerist ekki þörf.