19.05.1942
Efri deild: 61. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (2461)

38. mál, stjórnarskipunarlög

1) HermJ:

Það er nú í samræmi við aðra meðferð þessa máls að afgr. breyt. á stjórnarskipun landsins með afbrigðum frá þingsköpum. Ég lít svo á, að eins og mál þetta er allt til komið og undirbúið og eins og efni þess er, þá sé það hæfileg vanvirða fyrir stjórnarflokkana, sem standa að þessu máli, að afgr. það með afbrigðum. Við framsóknarmenn munum þess vegna sitja hjá við þann leik.