06.05.1942
Efri deild: 50. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í B-deild Alþingistíðinda. (2507)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Hér á Alþingi er ekki það fyrirkomulag, að hafður sé sérstakur fyrirspurnatími til stjórnarinnar. Það getur vel verið, að ekki sé óeðlilegt að hafa það. Hér hefur hins vegar verið á því annað form, enda er nauðsynlegt, að sá ráðh., sem spurður er, hafi gögn við höndina viðvíkjandi þeim málum, sem um er spurt.