06.05.1942
Efri deild: 50. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (2510)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
*Brynjólfur Bjarnason:
Það hefur verið venja hér, þegar bornar hafa verið fram fyrirspurnir til ráðh. utan dagskrár, að þeim hafi verið svarað. Hitt er alveg undantekning, að þeim hafi ekki verið svarað. Þegar samt slíkt á sér stað, verður maður að álykta, að hæstv. ráðh., sem þar á hlut að máli, hafi fram að færa einhverjar ástæður fyrir því, að hann neitar að svara.
Nú er spurt hér um, hvort það sé rétt, sem fullyrt er í ákveðnu blaði, og það í flokksblaði hæstv. ráðh. Og mér finnst það nokkuð hart, að maður skuli ekki geta fengið því svarað. Hvaðan hefur blaðið þessar upplýsingar? Ef það hefur þessar upplýsingar frá hæstv. ráðh. eða hæstv. ríkisstj., þá skil ég ekki í því, að hægt sé að verja það, að einu ákveðnu blaði séu gefnar slíkar upplýsingar, en þm. sé hins vegar neitað um þær. Ef þetta aftur á móti er ekki rétt hjá blaðinu, ef það fer þarna með fleipur og hefur ekki fengið neinar upplýsingar hjá hlutaðeigandi ráðh., þá finnst mér líka óviðeigandi að skýra ekki frá því. Ég get þess vegna ekki séð, hvernig hæstv. ráðh. getur komizt hjá því að svara þessari fyrirspurn, og sömuleiðis, að hann svari því, hvort það sé rétt hermt hjá blaðinu eða ekki, að samningar séu komnir á við ameríska setuliðið.