21.04.1942
Neðri deild: 39. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (2516)

Afgreiðsla mála úr nefndum

*Pálmi Hannesson:

Á öndverða þingi bar ég og fleiri þm. fram frv. um breyt. á l. um dragnótaveiði í landhelgi. Þetta frv. fór gegnum 1. umr. og til sjútvn. Nú er liðinn langur tími, síðan frv. fór þangað, en bólar ekki á því enn, og virðist þó, að nægur tími hefði átt að vra til þess, að afgreiðslu þessa máls hefði átt að vera lokið. Ég vil leyfa mér fyrir hönd flm. að beina því til hæstv. forseta og þessarar n., að okkur verði gerð úrlausn og þetta mál megi koma til 2. umr. sem allra fyrst.